Ari og Jenný í DK
Fjón og Óðinsvé
21.06.2009 14:39:06 / jennyari

þriðja sæti

í kvennahlaupi Sjóvá í Óðinsvéum fyrir Jennýju! 4. sæti fyrir mig (hún stakk mig af á endasprettinum við að heyra "áfram Jenný, vinna mömmu!" frá gömlum skólafélaga mínum: http://www.sjova.is/album.asp?cat=147&albumId=348#3 ) og allar hinar nema tvær voru á eftir okkur. Þetta er allt að koma hjá okkur mæðgunum. Það voru jarðarber með þeyttum rjóma í verðlaun á svölunum á eftir.
Sól, sjór og sandur í dag. Pítsa í kvöldmatinn og snemma að sofa.



» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2009 18:51:09 / jennyari

Hvað gerir maður ef boltinn festist uppi í tré?

Hendir skónum sínum, húslyklunum og hjólalásnum á eftir. Sest svo niður og bíður eftir að mamma komi heim og bjargi hlutunum niður úr trénu, mamma bjargar altaf hlutunum.
Boltinn er enn uppi í tré.
Kvennahlaup og fótboltadagur á morgun. Það verður að taka þátt alltaf því það er búið að fjárfesta í svo miklum útbúnaði...
Við erum á leiðinni heim til að bæta aðeins við gjaldeyrisforðann á Íslandi; látum gjarnan bjóða okkur í kaffi og mat og gistingu.



» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2009 07:48:07 / jennyari

flottust

Lét mig hafa það að fara í klippingu og strípur í gær og er þvílíkt sátt við útkomuna; er alger rokkmamma segir unglingurinn, eyðslukló segir hlaupArinn (veistu hvað maður getur keypt marga fótbolta fyrir alla þessa peninga?) og flott - en ég vil ekki vita hvað þú borgaðir, sagði fuglinn.
Líklega hefði ég getað keypt hárgreiðslustofu á Íslandi fyrir sama verð. Við mæðgurnar erum á leið í stelpuferð til Kölnar, Bonn, Bad Honnef, Trier og Lúxemburg; förum af stað í kvöld og komum heim þriðjudagskvöld. Ætlum að kíkja á au-pair fjölskylduna mína og svo held ég gestafyrirlestur við Háskólann í Trier á þriðjudag. Strákarnir verða að spjara sig sjálfir á meðan. HlaupArinn er byrjaður að æfa fótbolta tvisvar í viku ("loksins") og hann hlakkar mikið til að spila við frændur sína í sumar (mamma, af hverju ert þú ekki svona alvörufótboltamamma eins og Sigríður og svo á hún líka þrjá stráka).
Auf Wiedersehen!
Erla


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2009 12:18:05 / jennyari

Hver er bestur....

eða allavega níundi bestur í sínum aldursflokki þrátt fyrir erfiða byrjun aftast í hópnum.
Við mæðgurnar stóðum okkur líka vel miðað við undangengið kvef og hlupum á nákvæmlega sama meðalhraða sitt hvort hlaupið, 2,3 og 5 kílómetra.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 20:46:34 / jennyari

Gleðileg jól!

Við óskum öllum ættingjum og vinum nær og fjær gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Erla, Jenný, Ari og Stefan



» 6 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 20:58:04 / jennyari

Á leiðinni heim

Langt varð það, verkfallið, því lauk fyrir viku og voru sumir orðnir annsi þreittir á að vera “bara” heima hjá sér. Börnin harðneituðu almennt að fara heim aftur af leikskólanum fyrsta daginn, það þurfti mikinn sannfæringarkraft til að þau tryðu því að þau mættu koma aftur daginn eftir. />

Nú er ég sem sagt barnlaus í fæðingarorlofi þar sem barnið er á sérsamningi og fær að vera allan daginn þrátt fyrir hálfsdagspláss en þar sem hann er yfirforingi elstu barnanna og stjórnar allri heringunni af miklum krafti er ekki hægt að neita honum um það. Ég er búin að vera að dunda mér við að svara pósti og tölvupósti sem hefur hlaðist upp þar sem ég hef yfirleitt dottið út af aluppgefin um svipað leyti og einkasonurinn sofnar. />

Þýskalandsförin var ágæt en mikið er ég fegin að eiga bara tvö börn. Síðustu vikur hafa farið í lokatónleika hjá tónlistarskóla, kór og skóla, lokaveislu í leikskóla og öðru sem fylgir skólalokum. Og fótbolta. Því fylgir að sjálfsögðu tölvuafneitun fyrir mig þar sem við horfum á stafrænt sjónvarp á stóra skjánum mínum. Enda hentum við sjónvarpinu okkar þegar við fluttum. />

Smiðurinn okkar sem mætti á staðinn í morgun og náði að setja hurð hjá Ara og skóskápinn inn í vegginn. Og hann ætlar að klára á morgun og setja nýja hurð í íbúðina svo hún verði tveimur fermetrum stærri og með forstofu. Þetta er allt að koma. />

Ef veður og flugumferðarstjórar lofa komum við til Íslands á mánudagskvöld og verðum til 8. ágúst. Við höfum hugsað okkur að borða okkur í gegn um júlí hjá vinum og ættingjum og bíðum spennt eftir fyrstu matarboðunum. />

Hafiði það sem allrabest.
Erla

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 20:12:36 / jennyari

í fæðingarorlofi...

... síðan í gær. Stundum gerast hlutirnir hratt í Danaveldi. Unglingurinn er á leiðinni til Þýskalands á morgun og við eltum hana á föstudag. Ari Íslandsfari er kominn aftur í verkfall, náði hálfum degi á leikskólanum eftir að hann kom heim og var ekki glaður. Allir vinirnir hjá ömmum og öfum og ekkert hægt að leika sér almennilega. Og þetta verður langt verkfall, það er það eina sem vitað er með vissu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 19:33:10 / jennyari

ef ég væri ekki málfræðingur

þá myndi ég reka dráttarþjónustu.
Finn alveg fullt af skemmtilegum orðum og orðum sem eru ekki einu sinni til við yfirlesturinn á orðabókinni. Það er svona þegar þýðandinn er að fara skammleiðir og finnur svo setlagamyndun í frárennslinu afþví það þroskast skorpumyndun af kalkinu í vatninu. Úr börnum verða sprotar og þau blóta eið fyrir rétti (eða í innbyggðum eldhúsum) og svo kreista þau einhvern til að ógilda sjónvarpið sitt eða veita blaðberanum fyrirsát. Og úr konunni sem gekk mjög vel á keiluspilsmótinu var gerður ræstitæknir sem tók mjög vel til eftir mótið. Ekki fór reyndar betur fyrir manninum sem elnaði á glapstigum, hann endaði með að gefa lífið upp á bátinn. Hans síðasta stund var runnin upp um leið og hann leysti sætisólina. Örlög hans sem langtímaatvinnuleysingi voru svo notuð sem hemill til að telja alla á að segja skilið við endalokin.
Mjög athyglisvert, langsótt og mikið er ég búin að blóta blessuðum kolleganum sem "gleymdi" öllum málfræðiupplýsingunum. Það er sól og sumar úti en ég tek lítið eftir því nema þegar ég fæ mér að borða á svölunum.
Við mæðgurnar erum búnar að vera duglegar að hjóla þrátt fyrir árekstur við undirgöng og önnur skemmtilegheit. Það er löng helgi framundan með yfirlestri, málingarvinnu og rólegheitum.
Karlpeningurinn er víst í góðu yfirlæti á Íslandi, búinn að fara með ömmu að veiða, í fjárhúsin hjá Friðgeiri og í sumarbústaðinn. Þeir ætla nú samt að koma aftur heim í næstu viku.
Góða helgi!
Erla



» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 22:03:55 / jennyari

farfuglar

Þá er fuglinn kominn og farinn aftur, með annan ungann sinn með sér í þetta skipti. Það var stutt stopp hérna með mikilli vinnu og litlum tíma og barnið í verkfalli að auki. Við Jenný fylgdum þeim til Kaupmannahafnar á laugardaginn og þar sem það var seinkun á fluginu skelltum við okkur í heimsókn til Ingu og svo á pitsustað í kvöldmatinn. Strákarnir voru svo komnir til Íslands um miðnættið, frekar þreyttir.
Við mæðgurnar dundum okkur bara heima hjá okkur, endurskipulögðum herbergi unglingsins og ég gerði mig seka um að henda einhverjum af þeim bunkum sem ekki höfðu verið hreyfðir síðan þeir fóru ofan í kassa í flutningum. Það var allt að því dauðasök og olli miklu ósætti á heimilinu. Það er skap í barninu. Hún er þó farin að tala við mig aftur. Í dag skelltum við okkur í verslunar- og safnaleiðangur með vinkonum okkar og enduðum í mat hjá þeim.
Ég er byrjuð að prófarkalesa orðabókina og verð að því eitthvað fram eftir vori og fer svo væntanlega að kenna aftur í haust.
Það er sem sagt nákvæmlega ekkert að frétta hjá okkur hérna. Engar fréttir eru víst góðar fréttir svo ég bið bara að heilsa í bili.
Bestu kveðjur, Erla


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 19:01:52 / jennyari

Gleðilegt sumar

Við erum í verkfalli. Ari er búinn að vera heima í rúma viku núna af því að aðstoðarkennararnir í leikskólunum (ásamt sjúkraliðum ofl.) eru í verkfalli og þá fera allt í steik, bara hægt að passa minnstu börnin og öll hin send heim. Fóstrurnar eru samt ekki í verkfalli svo maður spyr sig bara hvernig starfsmannahaldið á þessum blessuðum leikskólum er - svarið er einfalt, það er hægt að ráða amk. 1 1/2 aðstoðarkennara fyrir hvern alvöru leikskólakennara. Punktur. Það er búið að vera mikið fjör hjá okkur að dunda okkur heima og við tókum ganginn í gegn: spörsluðum og slípuðum alla veggina og máluðum svo í gær. Það var víst enginn sem vildi gera þetta í sumarfríinu sínu. Svo er bara að vona að smiðurinn sem ætlaði að koma eftir vetrarfríið láti sjá sig fyrir sumarfrí. Barnið hafði út úr mér hjólabretti og dundar sér á því á skólalóðinni. Við hjólum út um allt, hann á hálfhjóli og unglingurinn á sínu eigin hjóli, mesta furða hvað við spjörum okkur bíllaus, enginn söknuður af minni hálfu.
Í fyrradag fór Ari í heimsókn til Gabríels vinar síns og gisti og við notuðum tækifærið og skruppum í bíó á alvörumynd (ég veit ekki hvað er langt síðan að ég sá eitthvað annað en barnamyndir í bíó). Danska mynd sem heitir "spilareglurnar" og hún var svo ekta að hún var eiginlega hundleiðinleg - hún var um samkeppnina um stöður og titla innan háskólanna hérna og það er allt leyfilegt; nú er jú líka búið að auglýsa stöðu í þýskum málvísindum hérna við háskólann og sú er eyrnamerkt kunningjakonu minni þó að ég ætli mér nú reyndar að sækja um líka. Spurning hvaða ráðum ég á að beita.
Í dag fékk Ari tvo vini sína í heimsókn, Tobias og Marius og við fórum í langa gönguferð í sumarblíðunni, kíktum á leikvöll, fengum okkur ís og skoðuðum svo beinagrind af alvöru dauðum víkingakonungi; það var nú meira en lítið spennandi. Svo bættist Jenný í hópinn með tvær vinkonur og við enduðum daginn á alvöru sumarkaffi með foreldrum þeirra með nýbakaðri ostaköku og jarðarberjatertu með jógúrt og rjóma.
Gleðilegt sumar!
Erla


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 23:09:07 / jennyari

Fyrir alla þá sem hafa óseðjandi áhuga á efnafræði...

... http://www.hi.is/Apps/WebObjects/HI.woa/wa/dp?detail=1014168&name=frettasida

Stefan Vogel: Málstofa efnafræðiskorar - DNA mediated assembly of nanoparticles (11.04.2008)

Stefan Vogel, dósent við Háskóla Suður Danmerkur (SDU), mun halda fyrirlesturinn "DNA mediated assembly of nanoparticles" í stofu 158 í VRII H.Í. föstudaginn 11. apríl kl. 12:30. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

An importan strategy for the functionalization of DNA duplexes is the replacement of natural monomers by artificial nucleosides or non-nucleosidici macrocyclic building surrogates. The lecture will describe the synthesis and remarkable consequences of the insertion of lipophilic macrocyclic building blocks on the thermal stability of the corresponeding DNA duplex as well as unique interactions with liposomes.

Staður: VRII-158




» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 22:04:38 / jennyari

Ljóti kjúklingurinn

Börnin voru bæði í 203 ára afmælisfagnaði í tónlistarhúsinu í gær, á sitt hvorum tímanum en sama efnisskrá. Þetta var alveg rosalega gaman (Ari) - þetta var eiginlega bara fyrir smábörn (Jenný). Strákarnir í leikskólanum töluðu mikið um þetta, sérstaklega þótti þeim teiknimyndin "Den grimme kylling" (ljóti kjúklingurinn) hafa verið skemmtileg. Þó að leikskólinn þeirra heiti meira að segja Ællingen (andarunginn) hafði nafnið einhvern veginn farið svona rosalega skemmtilega vitlaust í þá.
Við borðuðum reyndar ekki andarunga heldur grænmetislasagna í gær, ég er búin að komast að því að börnin taka ekkert eftir því þó maður noti allt að 3/4 grænmeti (laukur, gulrætur, paprika, tómatar; soðið og maukað) í kjötsósuna. Meira að segja unglingnum þótti þetta alveg ofboðslega gott. Áður en hún fattaði hvað var í. Þá var þetta bara "svona allt í lagi".
Ég er farin að nota skrifstofuna hans Stefans til að vinna (hann skildi lyklana sína eftir) svo ég þurfi ekki að hjóla á milli tvisvar á dag, núna eru það bara 15 kílómetrar daglega. Hjólið virkar líka loksins eins og það á að gera eftir að það var skipt um felgur, dekk og bremsur. Felgurnar voru gallaðar og átu upp bremsurnar. Alvöru mánudagshjól.
Við unglingurinn fórum í smá hjólatúr í dag með Ara í vagninum og svo voru þau að leika sér í bakgarðinum í nýju rólunni. Vorið er komið og þá er ekki hægt að vera inni.
Hafiði það sem allrabest. Vorkveðjur, Erla



» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 19:40:15 / jennyari

Farfuglar

Við vorum í Þýskalandi um páskana. Það útskýrir bloggleti að nokkru leyti. Annað er bara hrein leti og ritstífla. Veturinn kom en stoppaði stutt við og nú er vorið alveg að koma, er eiginlega komið og dagurinn lengdist um heilan klukkutíma aðfaranótt sunnudags. />

Þýskaland var með betra móti. Við gistum hjá vinum okkar (Stefan og pabba hans kemur ekkert  vel saman eins og stendur - löng og frekar leiðinleg saga sem látin verður kyrrt liggja), þ.e. ég og börnin og svo það sem var eftir af Stefan þegar hann kom frá Indlandi. />

Níu tíma lestarferðin gekk vel. DVD og geisladiskar voru notaðir sem deyfilyf og óspart spilað ólsen ólsen. Við þurfum reyndar aðeins að spara við okkur farangurinn næst, þetta var annsi þungt hlass sem við vorum með (og samt var ég búin að helminga farangur barnanna að þeim óspurðum, uppgötvaðist ekki fyrr en á leiðarenda). />

Jenný fór í skólann með vinkonu sinni í fjóra daga, svo var afmælisveisla í dýragarðinum og ýmislegt annað brölluðu þær stöllurnar. Ara og litlu systur vinkonunnar kom þetta líka vel saman og þau dunduðu sér í mamma, pabbi og litla risaeðlubarnið leik flesta dagana. Nú eða kubbuðu, byggðu lestarkerfi og eltu köttinn, sem byrjaði að sýna merki um barnafælni og settist að uppi á ísskáp eftir að vera búinn að pissa ofan í skúffur og undir kommóður. Ég dundaði mér í háskólanum með Ara og heimsótti vini og kunningja, fór á bókasýninguna og las meira að segja heila bók - sem var ekki fagbók! Orðasjóðurinn er loksins orðin villulaus og ég þarf að koma mér í að skrifa einhverjar fréttatilkynningar um hann á næstu dögum. />

Svo var þetta venjulega, leita að páskaeggjum, borða páskahéra og drekka páskakaffi. Allt í allt vellukkuð ferð. />

Stefan stoppaði stutt við heima hjá sér, í einn dag, áður en hann flaug til Íslands þar sem hann mun vera í góðu yfirlæti hjá Snorra efnafræðiprófessor. Hann var víst með fyrstu farfuglum þetta árið. Bókunin á háskólaíbúðinni fór eitthvað úr skorðum svo hann kemst ekki þar inn fyrr en næst.

Unglingurinn þurfti að fara til tannlæknis. Kominn með holu sem reyndis svo ekki vera alvöru hola. Hún er með svo lélegan glerung á tönnunum að það var bara komið gat í gegn. Það þurfti ekkert að bora, var bara sett plastfylling beint í, en aumingja hún á eftir að fara margar ferðir til tannlæknisins út af þessu. Og enginn veit afhverju þetta er svona og það eru víst fjöldamörg börn á hennar aldri sem glíma við þetta vandamál (spurning hvort þau hafi öll fengið flúorpillur þegar þau voru smábörn).
/>

Ég stend mig eins og hetja við að hjóla bæði morgun- og eftirmiðdagsferðina í leikskólann, 30 kílómetrar í allt. Og fá tónlistarskóla, sundnámskeið og leikfimi með í skipulagið. Reyndar ætla ég að vinna eitthvað í háskólanum í næstu viku, þá sparast önnur ferðin ef ég tek Ara bara með um leið og ég fer heim. Svo dunda ég mér við að setja upp myndir, taka til og þrífa. Gangurinn okkar bíður enn eftir að fá síðasta sparslið en ég er þó búin að fylla í holurnar. Smiðurinn sem ætlaði að koma eftir vetrarfríið er enn ekki kominn og kemur kannski í byrjun maí og setur upp tvær hurðir fyrir okkur. />

Í sumar kemur annar doktorsnemi Stefans, hún Ulla, í þrjá mánuði til Íslands, júní, júlí og ágúst. Þetta er yndælis stelpa frá Norðurfjóni og hana bráðvantar herbergi á viðráðanlegu verði þennan tíma. Er ekki einhver þarna úti sem getur bjargað henni???? Í skiptum fyrir 5 herbergja íbúð á besta stað í miðbænum í Óðinsvéum í júlí :haha: />

Á morgum fara öll börn í 203 ára afmæli í tónleikahúsið. Mikil tilhlökkun. />

Hafiði það sem best! />

Kv. Erla />

PS: Betra er seint en aldrei svo litli bróðir fær hér með síðbúnar hamingjuóskir! />


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 08:21:39 / jennyari

Gleðilega páska...

... við erum farin í páskafrí til Þýskalands, öll nema Jenný, hún þarf að mæta í skóla.
Fuglinn þiggur reiðhjólið hans litla bróður og segir takk!
GLEÐILEGA PÁSKA!!!!  :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 18:02:12 / jennyari

enn fleiri afmæli...

Tobias besti vinur Ara er fæddur mánuði seinna en Ari svo það er afmælisdagur á morgun. Það hefur verið í mörgu að snúast hjá Ara við að undirbúa þetta afmæli líka. Pakka inn afmælisgjöf og gera afmæliskort. Afraksturinn er nokkuð góður, skrifaður eftir fyrirmynd: 


 
Þess má geta að systir hans skrifaði oft spegilskrift þegar hún var að læra að skrifa svo þetta virðist liggja í genunum hjá þeim.
Þeir vinirnir hafa þekkst síðan Tobias fæddist og brallað margt saman. Þeir eru líka búnir að þaulskipuleggja afmælið á morgun. Ari mætir beint til Tobias og þeir fara svo saman að sækja hin börnin á leikskólann og svo verður veisla heima hjá Tobias.
Við tókum okkur til og fylltum upp í stærstu götin í ganginum í dag. Kannski tekst okkur að klára þetta fyrir sumarfrí. Smiðurinn sem ætlaði að koma vikuna eftir vetrarfríið hefur enn ekki látið sjá sig, meistarinn segist vera í vandræðum með að menn séu í fæðingarorlofi í tíma og ótíma. Heimur batnandi fer.
Annars er bara komið vor án þess að það væri alvöru vetur, páskaliljur, vetrargosar og krókusar blómstra á fullu. Í okkur er kominn ferðahugur enda stutt til páska.
Stefan lýsir hér með eftir notuðu, nothæfu reiðhjóli til að komast á milli staða í Reykjavík eftir páska. Ég íhugaði að útskýra vetrarumferð á Íslandi fyrir honum í stuttu máli en ákvað að hann yrði bara að læra af reynslunni. Ef einhver á reiðhjól sem hægt er að fá lánað þá yrði það vel þegið.
Hafiði það sem best.
Erla



» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 27884
Klukkan